Upplýsingar

Hjálp

Minn listi

Tölfræði

Hvernig set ég minn lista inn á blog.is?

Þessar leiðbeiningar skiptast í tvo hluta. Fyrri hlutinn lýsir því hvernig nálgast skal iframe kóðann á BloggGáttinni svo hægt sé að bæta ykkar lista við bloggið ykkar á Mbl.is. Hinn hlutinn lýsir því síðan hvernig setja skal svo inn þennan kóða til að iframe listinn birtist á blogginu ykkar á Mbl.is.

Til þess að geta bætt við iframe lista frá BloggGáttinni inn á bloggið ykkar hjá Mbl.is, þá þurfið þið að skrá ykkur fyrst og haka síðan við þau blogg sem þið viljið fylgjast með.

Fyrri hluti - Hvernig skal nálgast iframe kóðann

  1. Fara á /var/www/blogg.gattin.is/v3.0/
  2. Smella á "Breyta mínum lista" eða skráið ykkur inn undir "Breyta lista"
  3. Fylla út í "Netfang" (notanda íkon) og "Lykilorð" (lás íkon) og smella síðan á "OK"
  4. Smellið síðan á "Skoða minn lista í iframe" hægra meginn á síðunni.
  5. Efst á síðunni sem birtist er að finna iframe kóðann
  6. Veljið allan kóðann sem byrjar á: <iframe src="... >
  7. Afritið síðan kóðann með Ctrl-C

Ef iframe listinn ykkar reynist vera of breiður fyrir bloggið ykkar á mbl.is, þá er hægt að minnka breiddina á listanum með því að minnka töluna í width=”250".

Að þessu loknu þá þurfum við að fara á bloggið ykkar inná mbl.is.

Seinni hluti - Setja iframe inn á Moggabloggið

  1. Skrá sig inn á Moggabloggið og fara inn á Stjórnborðið
  2. Smella á "Tenglar og listar"
  3. Bæta við lista
  4. Fylla út í nafn, t.d. BloggGáttin
  5. Ekki er nauðsynlegt að fylla út í lýsingu
  6. Velja "HTML box" í "Tegund"
  7. Smella á "bæta við"
  8. Smella aftur á "Tenglar og listar"
  9. Smella á "Breyta"
  10. Líma (Ctrl-V) inn slóðina á ykkar iframe lista í "HTML" kassann.
  11. Smella síðan á "Bæta við"
  12. Smella síðan á "Stillingar"
  13. Smella síðan á "Útlit"
  14. Smella síðan á "Síðueiningar"
  15. Draga "Notandaskilgreint HTML-box" úr listanum "Ónotaðar einingar" yfir á þann stað sem þið viljið að listinn birtist.
  16. Smella síðan á "Vista breytingar"
  17. Núna ætti listinn að birtast á síðunni ykkar

Þessar leiðbeiningar hér að ofan ættu að duga. Hins vegar ef upp koma vandamál varðandi það sem snýr að bloggkerfi Mbl.is, þá er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið: blog@mbl.is.