Á flestum bloggsíðum er að finna tengil í RSS veitur.
Hins vegar er þetta ekki alltaf augljóst á öðrum bloggsíðum. Ef ekki finnst beinn tengill í RSS veitu, þá er yfirleitt lítil RSS táknmynd að finna í "Address bar" í Firefox vafranum (Þar sem finna má slóðina á vefsíðuna). Eins og sjá má á myndinni hér að neðan.
![]()
Í Internet Explorer er RSS táknmyndin fyrir neðan "Address bar"

Ef smellt er á þessar táknmyndir, þá kemur slóðin að RSS veitunni í "Address bar" og innihald RSS veitunnar birtist. Næsta skref er að afrita CTRL-C þessa slóð og líma CTRL-V hana síðan í innsláttargluggan undir "Bæta við RSS veitu" á BloggGáttinni.