RSS er samheiti yfir nokkra XML staðla sem notaðir eru til að gefa út yfirlit yfir nýjar fréttir á vef. RSS skjal inniheldur upplýsingar um vefinn sem um ræðir, ásamt upptalningu á fyrirsögnum nýjustu frétta vefsins og slóðum að þeim.
Tæknilega séð er varla flóknara að gefa út RSS heldur en að birta á vefsíðu lista af fyrirsögnum. Eini munurinn er að skjalið er á RSS (XML) formi, í stað HTMLs.